Færsluflokkur: Bloggar
31.7.2009 | 22:57
Óþverra gjörningar innan bankans
Það er að koma alltaf betur í ljós að hið heilaga orð bankaleynd er orðið mikilvægara en gjaldþrots heillar þjóðar,það er einmitt þetta sem er að gerast.Á bakvið þetta orð þrífst óþverrinn og fjármála gjörningurinn,lögin eru sniðin fyrir auðmennina og þar af leiðandi eru þessi útrásasvín og aðrir háttsettir menn hlífðir á bakvið þetta heilaga orð.
Bankaleynd á ekki að gilda þegar bankarán og fjármálagjörningar eru stundaðir innan bankans.
Ef það sé að nota orðið bankaleynd til að rústa heilu þjóðfélagi þá er eitthvað stórlega mikið að stjórnsýslunni hér,ástandið getur varla verið meira sjúkara en það er.
Svona óþverra gjörningar eiga vissulega að koma uppá yfirborðið svo almenningur viti hvað eiginlega er að gerast hérna.
Segja trúnað gilda um upplýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2009 | 19:18
Bíddu nú við!
Er þá engin yfirbygging yfir "höllinni" og sólin skín beint inn! eða eru stórar viftur sem dæla heitu lofti inn í höllina!....þetta er ég ekki alveg að fatta.
Er loftkæling óþekkt fyrirbæri í Túnis!.....hvað er klukkan annars í Túnis?
40 stiga hiti í keppnishöllinni í Túnis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.7.2009 | 08:52
Hann tók á sig mikla launalækkun!
Snillingurinn var með um tæp 62 milljónir á mánuði árið 2007 og nokkrar milljónir að auki í bónusa,en í fyrra var hann með "aðeins" 35 milljónir á mánuði....æ karlgreyið.
Það væri ekki bagalegt að geta keypt í hverjum einasta mánuði nokkra nýja
Land Cruiser glæsikerrur 18 millur stk og láta KB banka borga síðan bensínið.
270 bankamenn með yfir milljón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 16:10
Einmitt þá
Er þá þessi "hjálparstofnun" farin í sumarfrí þar sólin skín ekki!...Vonandi
Afgreiðslu AGS frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2009 | 20:54
Það kemur bara maður í manns stað.
Liverpool hafði nú 13 ár til að verða meistari áður en Ronaldo kom til sögurnar árið 2003,og núna eru liðin heil 19 ár síðan Liverpool varð enskur meistari.
Með þessum orðum er Carragher að gera lítið úr öllum liðsfélögum Ronaldo þegar hann spilaði með þeim öll þessi ár,United hafði hingað til spjarað sig frábærlega áður en hann kom til félagsins.
Það kemur bara maður í manns stað,það er enginn stærri heldur en félagið sjálft.
Carragher: Brottför Ronaldo mun hjálpa okkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2009 | 14:48
Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur
Að sjálfsögðu verður það vandasamt fyrir þingmenn að fjalla um samninginn ef leyfið fæst ekki,þá verður einfaldlega þessi gjörningur ekki samþykktur á alþingi.
Icesave lánið hefur hækkað um sjötíu milljarða króna síðan það var undirritað fyrir 12 dögum...70 MILLJARÐA!!! og ekkert bólar á styrkingu krónurnar þrátt fyrir miklar aðgerðir.
Það á að fara semja uppá nýtt því þetta er vitaskuld gjörsamlega fyrir neðan allar hellur.
Enn leynd yfir Icesave-samningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2009 | 14:11
Þetta er úr takti við allan raunveruleika þetta rugl
Það er nú ekki furða þetta er komið út í fáranlega vitleysu og stjórnleysið algjört,það að greiða kannski góðum leikmanni í knattspyrnu 100.000 til 120.000 pund á viku er bara þvæla og úr öllu takti við raunveruleikann.
Að fá heilar 24 milljónir kr á viku bara til að mæta á æfingar og spila svo kannski einn eða tvo keppnisleiki í viku!...það er ekki allt í lagi!
Meðallaun leikmanna hjá stóru félagi í úrvalsdeildinni eru kannski um kringum 40.000 til 60.000 pund sem gera 8 til 12 milljónir á viku!!...þetta er bara út úr kortunum.
Miðaverð á leiki hefur stórhækkað bara til mæta kostnaði um rekstur og til að borga leikmönnunum þessi stjarnfræðilegu há laun,svona rugl bitnar bara á venjulegu fólki sem eru að reyna mæta á leikina.
Háar skuldir og launakostnaður ensku úrvalsdeildarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2009 | 10:21
Strengjabrúður halda blaðamannafund!
Fulltrúar Peningastefnunefndar Seðlabankans ættu vitaskuld að láta Franek Rozwadowsky, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar á blaðamannafundi.
Peningastefnunefnd höfðu ekkert um þessa lækkun að gera heldur AGS.Í þessari Seðlabankabyggingu þarf enga seðlabankastjóra eða þá aðstoðarbankastjóra,helst ætti að leggja Seðlabankann niður.
Peningastefnunefnd Seðlabankans eru strengjabrúður fyrir AGS og sendifulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru ekkert á leiðinni að sleppa þeim spotta.
Hávaxtastefnan er að kjöldraga fólkið og fyrirtæki í skítinn.
Allir vita að AGS er hið raunverulega yfirvald í efnahags- og peningamálum hér.
AGS er hér á landinu til að gæta hagsmuna erlendra kröfuhafa.
Ríkisstjórnin ætti að láta það ógert að opna á sér kjammann og þvæla um að það séu umtalsverðar vaxtalækkarnir framundan og blekkja þjóðina,skaðinn er nógu mikill fyrir.
Ríkisstjórnin hefur vanrækt að upplýsa þingið og í raun þjóðina um hvað raunverulega er að gerast hérna.
Vextir lækkaðir í 12% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2009 | 21:18
Komatsu virkar á þetta Gúlag
Það er nú stutt í sjóinn frá þessum alræmdu fangabúðum þannig að það væri hið minnsta mál að stilla upp í röð nokkrum Komatsu jarðýtum (Super-Bulldozer)
stærstu í heimi og ryðja þessum fangabúðum beint í sjóinn.
Það kostar ekki 10.2 milljarða íslenskar kr
Hafnar lokun Guantanamo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2009 | 13:03
Þetta er stórlega sjúkt
Þetta er sjúklegt fyrirbæri,þeir sem eru með sín bílalán í skilum fá frystingu en hinir....sorry bara!,hve mörg prósent eru þá með sín þessi alræmdu bílalán skilum?
Svo seigir Már Másson, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka að langstærstur hluti viðskiptavina bankans séu í skilum með bílalánin þótt afborgarnir hafi hækkað um 70% til 100%...hvaða kjaftæði er þetta!
Eiga bíleigendur að geta tekist á við þennan vanda hér fyrir neðan!...NEI það þarf engin að seigja manni það.
2.000.000 Lán tekið 1. nóv. 2007
3.507.000 Eftirstöðvar í maí 2009
42.577 Afborgun 15. des. 2007
84.847 Afborgun 15. maí 2009
Og þótt lánadrottnar kæmu og hirtu bílinn af manni þá er maður samt í sömu
skuldasúpunni útaf þessum bílakaupum.
En hin almenni borgari sem verslaði sér bíl eða skipti um bíl hann verður að taka á sig gengistap og hrun bankana sem hann átti engan þátt í.
Það er annars gott ef einhver getur verið í skilum og borgað afborgarnir sínar af bílakaupum eða íbúðarkaupum sem hafa hækkað um 100%.
Þeim er hrósað fyrir það og fá frystingu en hinir getað étið það sem úti frýs.
Lántakar með frystingu inn í sumarið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Friðrik Friðriksson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar