Færsluflokkur: Bloggar
24.2.2010 | 22:14
Ekki gleyma klossunum!
Icesave fundur á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2010 | 06:57
Erum sakamenn og fyrirlitnir í augu Breta og Hollendinga.
Fjárkúganir Breta og Hollendinga virðast ætla halda áfram í þessu ömurlega máli og ruglið heldur bara áfram,síðasta útspil Breta og Hollendinga er hreinasta niðurlæging og það virðist sem þessar 2 þjóðir líti á íslendinga sem sakamenn í þessari milliríkjadeilu og hika ekki við að beita viðbjóðs hótunum í garð íslendinga og nota AGS sem vopn gegn landinu og beita sér gegn fyrirgreiðslu frá Norðurlöndunum og Póllandi og öll uppbygging stöðvast útaf þessum árásum og kúgunum Breta og Hollendinga.
Að vísu getur ríkisstjórn íslands bara unnið að einu máli í senn og látið allt hitt til hliðar, það er aðgerðir heimilanna og fleirra...ótrúlegt!
Svo er það með ólíkindum að Bretar skuli geyma enn 200 milljarða afborganir til Landsbankans á vaxtalausum reikningi og af hverju í óskupunum hefur ríkisstjórnin ekki gert neinar harkalega athugasemdir gagnvart þessum gjörningi Breta!
Maður vitnar til orða Jón Daníelsson hagfræðiprófessorinn en hann sagði meðal annars á að upphæðin sem Íslendingar gætu þurft að greiða samsvari því að Bandaríkin myndu skuldbinda sig til að greiða, miðað við höfðatölu, 5,6 trilljónir dollara og Bretar 700 milljarða punda. Fær hann ekki séð að þessar þjóðir myndu taka á sig slíkar byrðar, jafnvel við bestu kringumstæður.
Það er með öllu óskilljanlegt af hverju geta ekki háttsettir ráðamenn innan
Evrópusambandsins og víðar í Evrópu opnað helvítis augun og séð að þessar gjörningar skuldir sem eru lagðar á 300.000 manna litla eyju í Norður Atlantshafi er ekki að ganga upp!
Bretar og Hollendingar hafa hegðað sér eins og börn í sambandi við allt þetta Icesave mál og hika ekki að halda þessum svívirðilegum árásum áfram.
Telja of mikið bera á milli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2010 | 00:25
Þetta er komið langt yfir þolmörk
Þetta er forkastanleg aðför ríkisins að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og á að stöðva sem fyrst í fæðingu, það er komið nóg.
Konráð Lúðvíksson, yfirlæknir fæðinga- og kvensjúkdómadeildar er hættur störfum vegna þessa aðgerða hann hefur unnið þarna í 27 ár! og það segir allt sem segja þarf.
Hérna er ræðan fyrir neðan sem hann flutti á starfsmannafundi HSS og hún er átakanleg lesa og lýsir hvernig þessu hefur verið háttað síðustu ár.
Þetta er tekið af vf.is
http://vf.is/Frettir/43142/default.aspx
HSS: Konráð yfirlæknir segir þolmörkum sínum náð og hættir
Mitt elskulega samstarfsfólk og vinir
Það er vissulega kaldur raunveruleiki sem við stöndum frammi fyrir hér í dag, þegar við hér höldum á uppsagnarbréfum í höndum og getum ekki annað. Flestir þeir sem fengu bréfið í hendurnar eru að missa starfið sitt, fáeinir gætu hugsanlega haldið áfram að vinna, við eitthvað sem fellur til án faglegar fullnægju. Við slíkar aðstæður er nærtækast að hver líti í sinn eigin barm og hugi að sínu nærumhverfi og þeirri sorg sem uppsögn ber með sér.
Aðstæður fólksins sem stendur hér með bréfin sín er ærið misjafnar. Sumir eru hér að upplifa höfnun í 3ja eða jafnvel 4ða sinn, sumir eru í byrjun starfsferils síns eftir langt nám eða endurmenntun til þess að geta þjónað þessari stofnun og samfélaginu með kröftum sínum, fóru í námið með það að markmiði, jafnvel eftir hvatingu okkar hinna. Sumir eru einstæðir og eigin fyrirvinna, aðrir eru eina fyrirvinna, þar sem makinn er án atvinnu. Fyrir þetta fólk er sorgin hvað dýpst.
Suðurnesjamenn eru komnir með bísna þykkan skráp til að taka mótlæti af ýmsu tagi. Þeir virðast ætíð geta náð að aðlaga sig að nýjum aðstæðum þótt blóðdreifin að baki sé mis löng. Með dugnaði hefur þeim tekist að breyta draugborginni herstöð í mannvæna samfélagið Ásbrú, sakir óhefts frumkvæðis og framsýni. Smám saman hefur tekist þar að byggja upp samfélag tengt menntun, listum og nýjum iðnaði. Það sem hins vegar fær hinn þykka skráp Suðurnesjamanna að drjúpa er hin augljósa vanvirðing annarra á störfum þeirra og stöðu ekki síst þegar deila þarf úr sameiginlegum sjóðum.
Það er eins og stöðugt þurfi að refsa þeim fyrir eitthvað annað sem telja megi þeim til tekna. Þess vegna eru rúmin okkar vantalin þegar deila á fjármunum á þau, á meðan rúmin á Akranesi eru oftalin. Þess vegna kostar minna að liggja í okkar rúmum heldur en í rúmunum á Akranesi, þar sem þau eru blóðugri. Við erum nefnilega eins og Guðbjörg Sigurðardóttir sagði í viðtali talin annars flokks fólk. Þess vegna hefur fólk hér þurft að standa á rétti sínum af mikilli einurð og hörku til að ná árangri. Tvöföldun Reykjanesbrautar talar sínu máli. Kannski er nú verið að refsa okkur fyrir að ná henni í gegn, áður var það gjarnan að við gátum sótt allt á völlinn.
Ég hef mikla samúð með ykkur kæru samverkamenn, sérstaklega vegna þess að ég þykist vita hvern mann þið hafið að geyma. Hér er mesta framlegð í öllum störfum, og minnstur kostnaður á einingu, a.m.k. á sjúkrahússviði. Hér hefur verið unnið af mikillri trúmennsku og metnaði og við höfum vissulega uppskorðið. Vinnustaður okkar er hinn fallegasti og besti, sem utanaðkomandi dást að þegar þeir heimsækja. Þar sem sjúklingar gleðjast við þá einu hugsun að fá að leggjast hér inn eftir dvöl annarsstaðar, þar sem allir eru stöðugt að gefa af sér og bæta það mannlíf sem ber að garði, enda fáum við launað í stórgjöfum sem raun ber vitni. Því eru þau hryðjuverk sem hér hafa verið framin þeim mun sárari. Sú reiði sem hver maður sem á í hlut hlýtur að finna fyrir má þó ekki verða til þess að henni sé beint að innanbúðarfólki eða við hvort gegn öðru, næg eru þó sárindin fyrir. Ég veit að stjórnendur lögðu sig öll fram á lokasprettinum til að ná eyrum yfirvalda, en án árangurs. Aðeins sagan skráir hvers vegna.
Ég hef hins vegar miklar miklar áhyggjur af því starfsfólki sem þarf að vinna sinn uppsagnarfrest við þær ömurlegu aðstæður sem slíkur frestur hefur í för með sér. Ég tala af nokkurri reynslu, því aðeins í síðustu viku þegar hengingarólin hafði verið hert og aðeins átti eftir að kippa undan stólum breyttist einföld aðgerð sem ég hef gert í hundraða vís í martröð fyrir skjólstæðing minn. Ég fylgdist einnig með konu minni vinna sinn uppsagnarfrest og breytast úr hnarrreistum einstaklingi sem hlakkaði til hvers dags í hokinn einstakling án framtíðarsýnar í starfi. Ég veit að aðrir hér inni þekkja til svipaðra tilvika. Ég ætla sjálfur ekki að sinna starfi sem ég ekki get gefið mig allan í. Mínum þolmörkum hefur verið náð eftir 27 ár í starfi hér og á meðan 7000 börn fæddust hér.
Ég vona að stjórn stofnunarinnar skynji þá ábyrgð sem felst í því að skjólstæðingi sé sinnt við slíkar aðstæður, oft og tíðum með flóknum aðgerðum sem krefjast fullkominnar einbeitni. Að sjálfsögðu verður hver og einn að tala fyrir sig í þeim efnum og taka þá ábyrgð sem hann telur réttasta.
Ég vil einnig biðja ykkur stjórn HSS að íhuga að þau skilaboð sem við náum að skila út í samfélagið tel ég vega mest ef þau bresta á í dag af fullri hörku þannig að þau nái ekki að þynnast út í þriggja mánaða þjarki sem kannski ekkert skilur eftir nema sárindi fyrir starfsfólkið sem hér berst við að vinna af sér uppsagnafrest meir eða minna afhuga. Leyfið þessu fólki að fara frálsu með þeirri reisn sem hægt er að veita því með fullri greiðslu þessa 3 mánuði. Þessir mánuðir skipta ímynd stofnunarinnar engu úr þessu, nema síður sé. Staðreyndum verður ekki þokað nú er aðeins spurning hvernig menn halda á spilunum. Dagsetningin 1.maí breytist aðeins í 1.febrúar.
Ég ætla að kveðja ykkur í bili a.m.k með óskum um guðs náð og gæfu til ykkar og fjölskyldna ykkar.
Konráð Lúðvíksson,
Yfirlæknir fæðinga- og kvensjúkdómadeildar HSS
Fjölmennur borgarafundur á Suðurnesjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2010 | 08:24
Ekki alveg eins og maður bjóst við en...
Mér til mikillar furðu þá var Dexter ekki valinn sem bestu sjónvarpsþættirnir, þessi sjónvarpssería hefur farið hamförum um allan heim hvað vinsældir varða en von er á 5 seríu á þessu ári.
Frábært samt að Michael C. Hall sem leikur hin blóðslettufræðing og raðmorðingjann Dexter hafi verið valinn sem besti leikarinn svo hefði ég viljað
sjá að Jennifer Carpenter hefði allavega verið tilnefnd í sínum flokki það er í aukahlutverki í Dexter, en hún er einmitt eiginkona Michael C. Hall en hún leikur hina kjaftforu og léttklikkuðu systur Dexter.
Og að lokum var frábært að sjá John Lithgow koma til baka og vera valinn besti leikari í aukahlutverki en hann var hann alveg magnaður í seinustu seríu þar sem hann túlkaði hinn geðveika Trinity-morðingja á magnaðann hátt.
Avatar sló í gegn á Golden Globe | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2009 | 17:41
Bíða aðeins lengur
Æji...þetta hlýtur að vera átakanlegt en þorir þá enginn að standa upp í leikmannahópnum og kvarta og kveina því þeir fá ekki ekki sín þúsundir punda í launaumslagið....meinti ruslapokann fyrir einn mánuð!
Leikmenn Portsmouth þurfa enn að bíða eftir launagreiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2009 | 18:56
Heldur betur flopp ársins
ekki vatni yfir manninum og sagði að auki að Liverpool hafi dottið í lukkupottinn!
Lineker: Kaupin á Aquilani þau verstu á tímabilinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.12.2009 | 20:20
Loksins sigur eftir 26 ár!
Þessi sigur hjá mínum mönnum var hreint út sagt hilarious flottur, en þarna var vissum hefndum náð en í fyrra stal Man United sigrinum á síðustu mínútum.
Það er sætt að sjá hve mikið Hörður Magnússon þarf að éta ofan í sig ummæli sín þegar en hann gagnrýndi Villa liðið síðastliðið haust sagði að þetta væri arfaslakt lið.
Hver ætli hans skoðun sé á ástandi á sínum mönnum í Liverpool þessa dagana!.
Allavega FRÁBÆR sigur hjá Villa.
Aston Villa vann á Old Trafford | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.12.2009 | 13:37
Hið Bláa Okur Lón
Nú ættu eigendur Bláa Lónsins að slá tvær flugur í einu höggi, því í fréttinni stendur að það sé ódýrt fyrir útlendinga að njóta lífsins á Íslandi.
Væri það þá ekki frábær snilld að hækka verðmiðann upp í 5000 kr, svona bara til að tryggja það að sjálfir íslendingar hafi örugglega ekki efni á því að baða sig þarna.
Ísland ferðarinnar virði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.12.2009 kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2009 | 17:18
Einmitt það já
Að sjálfsögðu segja talsmenn Gatorade að ákvörðunin tengist ekki þeim vandræðum sem Woods eigi í einkalífi sínu.
Hefur Tækernum hrakað þá svona mikið í íþróttinni, er það kannski áðstæðan! eða sást hann drekka Coke á almannafæri.
Það væri fróðlegt að vita þá hver áðstæðan sé.
Gatorade losar sig við Tiger Woods | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2009 | 19:09
Suður Afríka í fyrsta styrkleikaflokk
Það er eitt sem ég er ekki alveg skilja en af hverju er Suður Afríka sett í fyrsta styrkleika flokk!, hefur þetta alltaf verið svona? og hver þá skýringin
á því.
En vonandi falla Frakkar úr leik sem fyrst sem, persónulega finnst mér þetta afskaplega leiðinlegt landslið og fannst mér það áður en fyrir leikin umdeilda við Íra um daginn, hefði svo miklu frekar viljað sjá írska landsliðið spreyta sig á HM þeir hefðu komið á óvart hugsa ég og þeir gefast aldrei upp.
Grikkland hefði mátt sitja heima sér, hefði frekar viljað sjá Úkraínu á HM í staðinn.
Riðlarnir fyrir HM 2010 eru klárir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Friðrik Friðriksson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 44723
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar