Fáranleg framkoma hjá Wayne Rooney

Mikið afskaplega getur ruglið verið svona mikið hjá Wayne Rooney en maður hélt að hann væri kominn yfir þetta.

Englendingar þurftu bara 1 stig og tryggðu sér sætið á EM en bara þessi framkoma hjá Wayne Rooney getur einfaldlega haft mikil áhrif á fyrsta leik Englendingum í úrslitakeppni EM næsta sumar.

Englendingar hafa ekki gert neinar rósir á stórkeppnum undafarna áratugi eða allar getur síðan 1966 þegar þeir urðu heimsmeistarar þannig að Englendingar þurfa ekki á þessu fíflalátum að halda ef þeir ætla sér einhverja stóra hluti á EM næsta sumar því Wayne Rooney er einn besti framherji heims.


mbl.is Dýrkeypt bræðikast Rooneys (myndband)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann skilaði bílnum...

en stendur það í kaupsamingum hjá Lýsingu að vélin og gírkassinn eigi að fylgja?Woundering
mbl.is Fjarlægði vélina og skilaði bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fín hugmynd

En eftir 4-6 ár! en mikið agalega er svona langt í það að þessi fína hugmynd verði að veruleika.
mbl.is Skoða þyrlukaup með Norðmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knattspyrnufélagið Fram

Allt gott um þetta að segja og frábært fyrir Eyjamenn en hvernig er þetta hjá Fram en liðið hefur leikið sína heimaleiki á Laugardalsvelli í tugi ára, af hverju er þetta rótgróna félag ekki komið með sinn eigin heimavöll eftir öll þessi ár? er það kannski vegna plássleysis?

Þetta er afar einkennilegt en það er eins og alltaf sé leikið sé fyrir luktum dyrum á hverjum einasta leik hjá Fram í dalnum því það er ekki hægt að búa til neina stemmingu þarna á leikjum Fram og afar einmannalegt á að líta.

Svo þegar Fram kemst í undanúrslit bikarsins að þá er leikið á heimavelli Fram!

Hvenær á Fram heimavöll og hvenær ekki?


mbl.is Samþykkja að leggja 10-12 milljónir í áhorfendastúku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa eytt 73 milljarða í leikmenn

Það er ansi atyglisvert að Robert Mancini skuli kvarta yfir um að hafa ekki nógu marga miðjumenn í sínum hópi þrátt fyrir að City hafi keypt leikmenn fyrir 73 milljarða kr á síðustu þremur árum....73 MILLJARÐA...Takk fyrir!
mbl.is Mancini kvartar yfir skorti á breidd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað um hina leikina?

Af hverju eru hinir leikirnir ekki frestaðir líka til morguns? á virkilega að láta menn reyna spila fótbolta í þessu veðri? og ekki koma margir á leikina.


mbl.is Leik ÍBV og KR frestað vegna veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launakjör hafa rokið upp úr öllu valdi.

Sneijder vill ekki lækka í launum en hjá Inter fær hann um 36 milljónir króna á viku, en United hefur boðið honum ýmsar árangurstengdar bónusgreiðslur sem gefa honum færi á að jafna núverandi laun.

Það er þetta kerfi sem á að koma á "árangurstengdar bónusgreiðslur" en þessar launagreiðslur nútímans eru komnar út í eitt forkastanlegt RUGL!


mbl.is Sneijder færist nær Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg merkilegt en...

það þætti saga til næsta bæjar ef 1 af stóru olíufélögunum myndu hækka krónu meira en hin 2, en...Nei Nei þeir passa uppá það að öll stóru olíufélögin hækki um sömu krónutölu svo að gervi samkeppnin fari ekki alveg úr böndunum þar sem auranir skipta máli.


mbl.is Bensínverð hækkar um 4 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul mynd

Manni sýnist að þessi mynd sé tekin í kringum 1978 til 1980.
mbl.is Gæti kostað bandaríska ríkið 100 milljarða dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Friðrik Friðriksson

Höfundur

Friðrik Friðriksson
Friðrik Friðriksson
Er Keflvíkingur.

 

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...051_1140111
  • ...ni_2008_051
  • ...051_1140109
  • ...ni_2008_051
  • obama.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 44554

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband